Um Ermarsund 2011

Fyrir dyrum er leiðangur Íslendinga með það að markmiði að sigra Ermarsundið. Hópurinn samanstendur af reyndasta og besta sjósundfólki landsins sem annarsvegar ætlar að synda einstaklingssund og hinsvegar boðsund.



Nokkrir minnispunktar um einstaklingsund Árna Þórs Árnasonar:
Ermarsund er liður í tilraun Árna til að vera annar Íslendinga til að synda Ermarsundið.  Ef það gengur vel stefnir Árni að því að verða fyrsti maðurinn í heiminum til að synda svokölluð Ocean´s Seven eða sjö frægustu og erfiðustu sjósund veraldar.


Verkefnið felur í sér strangar æfingar fram að sundinu sjálfu, en Árni þarf að synda um 30-45 km á viku þar til að sundtíma kemur, sem verður 7-14. júlí en þar hefur hann 1. sundrétt.
o    5 aðstoðarmenn eru sundmanninum til aðstoðar í verkefninu, enda í mörg horn að líta og mikil skipulagning framundan.  Valinn maður er í hverju rúmi og eru t.a.m Benedikt Hjartarson, sem synti Ermarsundið 2008 fyrstur Íslendinga  með í leiðangrinum.


Til gamans má geta þess að Árni Þór Árnason sjósundgarpur ætlar að reyna við Ermarsundið á sama tíma og boðsundsveitinn.  Þar sem einstaklingssund og boðsund krefst gjörólíks undirbúnings, að þá eru þetta tveir sjálfstæðir hópar sem standa á bak við sitthvor sundin.  Hinsvegar er mikil vinskapur á milli hópana enda hafa þeir unnið lengi saman að sjósundmálum og munum við sameinast í   undirbúningi þar sem það á við.


Sundið sjálft fer svo þannig fram að fylgdarbátur með aðstoðarmönnum, skipstjóra og fleirum siglir við hlið sundmannsins og beinir honum í rétta átt.  Sundmenn mega ekki snerta bát eða meðlimi ferðarinnar á leiðinni yfir sundið.  Sundmenn sem takast á við þessa þraut, þurfa að jafnaði að synda um 45-50 km leið, en það fer eftir föllum, straumum og veðri.

Gríðarlegar æfingar og mikil undirbúningsvinna liggur að baki leiðangrinum . Allt er gert til að gæta öryggis, en vissulega er sund yfir Ermarsundið erfitt og áhættusamt.   Ekki er farið af stað nema veður og sjóaðstæður leyfi.



Meðlimir hópsins  hafa stuðlað að uppbyggingu sjósunds (víðavatnssunds) á Íslandi í samstarfi við íþróttarhreyfinguna og fleiri aðila með góðu árangri. Þökk sé frumkvæði hópsins hefur sjósund vaxið sem almennings og afreksíþrótt:
  • Tekið þátt í að skipuleggja gríðarlega vel heppnuð hópsjósund
  • Meðlimir hópsins hafa unnið með Sundsambandi Íslands að reglugerð fyrir helstu og frægustu víðvatnssund landsins.
  • Stofnað SJÓR, Sjósunds og sjóbaðsfélag Reykjavíkur.
  • Stuðlað að auknu öryggi með námskeiðum og fyrirlestrum.
Í þessu sem og í fyrri verkefnum hópsins þarf mikinn kjark til að takast á við Ermarsundið en þó þannig að fyllsta öryggis sé gætt.  Samstarf innan hópsins er gott enda þarf mikla jákvæðni og hugarró til að takast á við duttlunga sjávar og veðurafla Ermarsundsins.