Nokkrir fróðleiksmolar um Ermarsundið:
- Það var Captain Matthew Webb's sem synti fyrstur Ermarsundið árið 1875.
- Síðan þá hafa þúsundir manna reynt við það en rétt um 1000 sundmenn hafa klárað einstaklingssundið (solo).
- Þrír Íslendingar hafa reynt við Ermarsundið í nokkrum tilraunum, aðeins einn hefur komist yfir, Benedikt Hjartarson.
- Bein lína yfir Ermasundið er 32 km. Vegna strauma og veðuraðstæðna hverju sinni er meðalsundmaður að synda um 40 - 45 km.
- Meðaltími sundmanna er 13 klst., 16 mínútur og 15 sekúndur.
- Meðaltími boðsundsveita er 12 klst., 10 mínútur og 28 sekúndur.
- 67,1% af sundmönnum er karlmenn. 32,9% eru konur.
- Meðalaldur sundmanna í Ermarsundinu er 33 ára.
