Árni Þór Árnason





Árni Þór Árnason er einn efnilegasti og besti sjósundgarpur landsins.  Hann hefur stundað sjósund um árabil og m.a. synt Drangeyjar og Viðeyjarsund.    


Árni á góðri stundu í sjónum 


Nú ætlar Árni að taka næsta skref í afrekum sínum en Ermarsund er liður í tilraun hans til að vera annar Íslendinga til að synda þetta mesta og frægasta sund heimsins.  Ef það gengur vel stefnir hann á að vera fyrsti maðurinn í heiminum til að synda svokölluð Ocean´s Seven eða sjö frægustu og erfiðustu sjósund veraldar.


1. Irish (North) Channel

2. Cook Strait

3. Moloka’i Channel (or Kaiwi Channel)

4. English Channel

5. Catalina Channel

6. Tsugaru Strait

7. Strait of Gibraltar



Verkefnið felur í sér strangar æfingar fram að sundinu sjálfu, en Árni þarf að synda um 30-45 km á viku þar til að sundtíma kemur, sem verður 7-14. júlí 2011 en þar hefur hann 1. sundrétt. 


Benedikt Hjartarson
5 aðstoðarmenn eru sundmanninum til aðstoðar í verkefninu, enda í mörg horn að líta og mikil skipulagning framundan. Valinn maður er í hverju rúmi og eru t.a.m Benedikt Hjartarson, sem synti Ermarsundið 2008 fyrstur Íslendinga, með í leiðangrinum.  Hann hvatti Árna til verkefnissins og mun miðla sinni reynslu.